Skip to Content

Viðskiptaskilmálar

Heildverslunin Rún ehf. — viðskipti við lög- og rekstraraðila (B2B)

Gildir frá: 27.04.2026

1. Almennir skilmálar

1.1 Viðskiptaskilmálar þessir gilda um öll viðskipti milli Heildverslunarinnar Rún ehf., kt. 610284-1089 (hér eftir „Rún“), og viðskiptavina félagsins, nema annað sé samið um skriflega.

1.2 Skilmálar þessir gilda um þær vörur sem Rún selur til lög- og rekstraraðila. Skilmálar þessir gilda því ekki gagnvart neytendum og víkja fyrir ófrávíkjanlegum lagaákvæðum sem snerta réttindi neytenda.

1.3 Skilmálarnir takmarka ekki almenn lögbundin réttindi viðskiptavina sem í gildi eru á hverjum tíma.

1.4 Að öðru leyti vísast til íslenskra laga sem í gildi eru á hverjum tíma og snerta viðskiptasamband Rún og viðskiptavina félagsins.

1.5 Rún áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Núgildandi útgáfa skilmála er ávallt aðgengileg á www.run.is.

1.6 Breytingar á skilmálum geta verið tilkynntar viðskiptavinum með tölvupósti, almennum pósti eða með birtingu á heimasíðu félagsins.

2. Pantanir og staðfesting

2.1 Pantanir má leggja inn með hvaða hætti sem er, m.a. símleiðis, í tölvupósti, í gegnum rafræn samskiptakerfi eða í persónu.

2.2 Allar pantanir eru skilyrtar því að Rún sé fært um að uppfylla þær. Rún áskilur sér rétt til að hafna pöntunum á grundvelli vörulagerstöðu, lánshæfis viðskiptavinar, öryggisástæðna eða annarra sambærilegra ástæðna.

2.3 Útgáfa reiknings telst staðfesting Rún á pöntun og samningur milli aðila stofnast við útgáfu reiknings á grundvelli þessara skilmála.

2.4 Geri viðskiptavinur ekki athugasemd við reikninginn innan 3 virkra daga frá útgáfu telst pöntunin endanlega samþykkt og bindandi. Athugasemdir skulu berast skriflega á bokhald@run.is.

3. Reikningsfærsla og afhendingartími

3.1 Reikningur er gefinn út við móttöku pöntunar og getur því verið gefinn út áður en vara er afhent eða send. Útgáfa reiknings telst staðfesting Rún á pöntuninni, sbr. grein 2.3.

3.2 Afhendingartími fer eftir því hvort vara er á lager eða þarf að panta frá birgi. Áætlaður afhendingartími vegna pantana sem þarf að panta að utan frá birgjum er á bilinu 7 dagar til 6 vikna eftir vörutegund og er tilgreindur við staðfestingu pöntunar eftir bestu getu Rún. Áætlaður afhendingartími getur breyst án fyrirvara.

3.3 Áætlaður afhendingartími er ekki bindandi nema sérstaklega sé samið um það skriflega. Tafir á afhendingu vegna birgja, flutninga eða annarra utanaðkomandi þátta veita viðskiptavini ekki rétt til riftunar eða skaðabóta, sbr. þó 9. kafla um óviðráðanleg atvik.

3.4 Gjalddagi reiknings miðast við útgáfu reiknings og er óháður afhendingartíma vörunnar. Greiðsluskilmálar viðskiptavinar gilda frá útgáfudegi reiknings samkvæmt grein 4.3.

3.5 Rún er heimilt að afhenda pöntun í áföngum og reikningsfæra hverja afhendingu sérstaklega ef það á við.

3.6 Viðskiptavinum er bent á að afla sér upplýsinga hjá Rún um stöðu pöntunar og áætlaðan afhendingartíma hverju sinni.

4. Verð, greiðsluskilmálar og dráttarvextir

4.1 Verð eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) nema annað sé tekið fram. Virðisaukaskattur og hugsanleg önnur opinber gjöld eru ekki innifalin í verði nema þess sé sérstaklega getið.

4.2 Rún áskilur sér rétt til að breyta verðum vegna gengisbreytinga, breytinga á aðfangakostnaði eða annarra ytri þátta fram að afhendingu, nema verð sé sérstaklega fastákveðið skriflega. Verð á staðfestum reikningi haldast óbreytt.

4.3 Greiðsluskilmálar eru ákveðnir á grundvelli viðskiptasambands og lánshæfismats hvers viðskiptavinar. Sjálfgefnir skilmálar koma fram á reikningi. Sé annað ekki samið um skriflega gildir gjalddagi sem tilgreindur er á reikningi.

4.4 Sé greiðsla ekki innt af hendi á eindaga reiknast dráttarvextir á kröfuna frá gjalddaga, í samræmi við ákvörðun Seðlabanka Íslands eins og hún er á hverjum tíma, sbr. lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

4.5 Komi til vanskila áskilur Rún sér rétt til:

  • að loka fyrir frekari úttektir viðskiptavinar á reikningsviðskiptum,
  • að gjaldfella allar útistandandi kröfur þegar í stað,
  • að krefjast tryggingar fyrir áframhaldandi viðskiptum,
  • að senda kröfu til innheimtu og skrá vanskil á vanskilaskrá 40 dögum eftir eindaga,
  • að skuldajafna inneignir viðskiptavinar á móti útistandandi kröfum,
  • að synja beiðnum um greiðsludreifingu á vanskilum einhliða.

4.6 Innheimtukostnaður og lögfræðikostnaður vegna vanskila greiðist af viðskiptavini í samræmi við gildandi lög og reglur.

5. Reikningsviðskipti

5.1 Rún áskilur sér rétt til að ákveða hvort opnað sé fyrir reikningsviðskipti við viðskiptavin og á hvaða kjörum.

5.2 Við umsókn um reikningsviðskipti heimilar viðskiptavinur Rún að afla nauðsynlegra upplýsinga um félagið, m.a. frá Creditinfo til mats á lánshæfi. Rún getur jafnframt óskað eftir bankayfirlýsingu, ársreikningum eða tilvísunum frá öðrum birgjum frá viðskiptavini sjálfum.

5.3 Rún er heimilt að endurmeta greiðsluskilmála viðskiptavinar ef forsendur lánshæfis breytast verulega, m.a. ef vanskil verða, breytingar verða á eignarhaldi eða rekstrarstöðu, eða nýjar upplýsingar benda til aukinnar áhættu. Slíkar breytingar skulu tilkynntar viðskiptavini skriflega.

5.4 Rún áskilur sér rétt til að krefjast trygginga fyrir skilvísum greiðslum áður en reikningsviðskipti eru opnuð, og hvenær sem er á samningstímanum, telji félagið slíkt nauðsynlegt.

5.5 Viðskipti á reikningi geta verið bundin hámarksfjárhæð á mánuði. Slík hámörk eru ákveðin af Rún í samráði við viðskiptavin.

5.6 Rún getur lokað reikningsviðskiptum vegna vanskila, brota á skilmálum eða ef málefnalegar ástæður gefa tilefni til.

5.7 Komi til gjaldþrots, rekstrarstöðvunar, greiðslustöðvunar eða nauðasamningsumleitana viðskiptavinar er Rún heimilt að hætta þjónustu og gjaldfella allar óreikningsfærðar úttektir þegar í stað.

5.8 Reikningar og færsluyfirlit eru aðgengileg viðskiptavinum með beiðni á bokhald@run.is.

5.9 Rún áskilur sér rétt til að senda rafræna reikninga, innheimtuviðvaranir og önnur innheimtuskjöl með tölvupósti eða í gegnum bankakerfi.

6. Afhending, áhættuskipti og eignarréttarfyrirvari

6.1 Viðskiptavini er skylt að veita pantaðri vöru viðtöku þegar vara er tilbúin til afhendingar og tilkynning þar um hefur borist frá Rún.

6.2 Sé vara ekki sótt eða móttekin innan 5 virkra daga frá tilkynningu um afhendingu áskilur Rún sér rétt til að keyra vöruna á skráð heimilisfang viðskiptavinar á kostnað hans, eða geyma vöruna á kostnað viðskiptavinar samkvæmt gjaldskrá Rún hverju sinni.

6.3 Áhætta af seldri vöru færist frá Rún til viðskiptavinar við afhendingu. Verði viðtökudráttur færist áhættan yfir frá þeim tíma sem viðskiptavinur átti að taka við vörunni, og ber viðskiptavinur þaðan í frá ábyrgð á tjóni eða rýrnun vörunnar.

6.4 Eignarréttur að seldri vöru helst hjá Rún þar til vara hefur að fullu verið greidd. Viðskiptavini er heimilt að selja vöruna áfram í eðlilegum rekstri sínum. Komi til vanskila, gjaldþrots eða sambærilegra aðstæðna á Rún rétt á að krefjast óseldrar vöru úr lager viðskiptavinar.

6.5 Hafi vara skemmst í meðförum þriðja aðila, svo sem flutningsaðila, ber móttakanda að gera athugasemd við viðkomandi aðila við móttöku vöru og tilkynna Rún án tafar.

7. Afpöntun, skilaréttur og kvartanir

7.1 Vörur skiptast í skilmálum þessum í tvo flokka:

  • Lagervörur: vörur sem Rún heldur reglulega á lager.
  • Sérpantanir og framvirkar pantanir: vörur sem pantaðar eru sérstaklega fyrir viðskiptavin frá birgi, eða eru ekki hluti af reglulegu vöruframboði Rún.

7.2 Afpöntun lagervara er heimil áður en vara hefur verið afhent eða send til viðskiptavinar, gegn greiðslu afpöntunargjalds að fjárhæð 15% af reikningsupphæð. Afpöntunin skal berast skriflega til sölu- eða þjónustudeildar Rún.

7.3 Sérpantanir og framvirkar pantanir eru endanlegar og óafturkallanlegar þegar pöntunin telst bindandi skv. grein 2.4. Slíkar pantanir verða ekki afpantaðar nema Rún geti skilað vörunni til birgis án kostnaðar. Sé ekki hægt að stöðva pöntun hjá birgja eða ef vara hefur farið í framleiðslu eða afhendingu, gildir eftirfarandi:

  • afpöntunargjald nemur að lágmarki 25% af verðmæti pöntunar, og
  • viðskiptavinur ber allan kostnað sem af afpöntuninni hlýst, þ.m.t. afpöntunargjöld birgja, flutnings- og umsýslukostnað.

7.4 Skilaréttur vegna lagervara, sem ekki tengist galla eða rangri afhendingu, er aðeins fyrir hendi með skriflegu samþykki Rún. Sé skil heimilað skal vara skilast óopnuð, óskemmd og í upprunalegum umbúðum.

7.5 Sé um galla eða ranga afhendingu að ræða skal viðskiptavinur tilkynna Rún skriflega:

  • Sýnilegir gallar og röng afhending: innan 7 virkra daga frá móttöku vöru.
  • Faldir gallar: án ástæðulauss dráttar eftir að gallinn varð eða mátti verða viðskiptavini ljós, þó eigi síðar en 6 mánuðum eftir afhendingu.

Berist kvörtun ekki innan þessara fresta missir viðskiptavinur rétt til að bera gallann fyrir sig, nema annað leiði af ófrávíkjanlegum lagaákvæðum.

7.6 Óheimilt er að senda eða mæta með vöru til Rún án þess að skriflegt samþykki sölu- eða þjónustudeildar liggi fyrir.

7.7 Reynist kvörtun réttmæt áskilur Rún sér rétt til að velja á milli þess að bæta gallann, afhenda nýja vöru eða endurgreiða kaupverð.

8. Ábyrgð og takmörkun ábyrgðar

8.1 Ábyrgð Rún á göllum er takmörkuð við þau úrræði sem talin eru upp í grein 7.7.

8.2 Rún ber ekki ábyrgð á óbeinu tjóni eða afleiddu tjóni viðskiptavinar, þ.m.t. en ekki einskorðað við tapaðan hagnað, rekstrartruflanir, viðskiptamissi, gagnatap, eða kröfur þriðja aðila á hendur viðskiptavini.

8.3 Heildarábyrgð Rún vegna einstakrar pöntunar takmarkast við reikningsupphæð viðkomandi pöntunar.

8.4 Takmarkanir á ábyrgð skv. þessari grein gilda ekki ef tjón verður vegna ásetnings eða stórkostlegs gáleysis Rún, eða þar sem ófrávíkjanleg lagaákvæði kveða á um annað.

9. Force majeure og ytri aðstæður

9.1 Hvorugur aðili ber ábyrgð á vanefndum eða töfum sem rekja má til óviðráðanlegra atvika (force majeure), svo sem en ekki einskorðað við: stríðs eða stríðsátaka, hryðjuverka, faraldra, náttúruhamfara, eldsvoða, verkfalla, hafnarverkfalla, truflana á aðfangakeðju, viðskiptaþvingana, tollaákvarðana, opinberra ákvarðana, netárása, eða annarra atvika sem aðili gat ekki séð fyrir eða haft áhrif á.

9.2 Aðili sem verður fyrir áhrifum af force majeure skal án tafar tilkynna gagnaðila um atvikið og áætluð áhrif þess á efndir samningsins.

9.3 Standi force majeure aðstæður yfir í meira en 90 daga er hvorum aðila heimilt að rifta þeim hluta pöntunar sem ekki hefur verið afhentur, án skaðabótaskyldu. Greiðsluskylda viðskiptavinar vegna þegar afhentrar vöru helst óbreytt.

9.4 Vegna stöðu mála í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi getur afhending vöru tafist vegna aðstæðna sem ekki er mögulegt að hafa áhrif á. Áætlaður afhendingartími er því alltaf háður almennum fyrirvara um ytri aðstæður.

10. Persónuvernd og meðferð upplýsinga

10.1 Rún meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, og almennu persónuverndarreglugerðina (GDPR).

10.2 Rún safnar nafni, kennitölu, tengiliðaupplýsingum, greiðslusögu og upplýsingum frá Creditinfo í þeim tilgangi að veita umbeðna þjónustu, meta lánshæfi, halda utan um viðskiptasamband og uppfylla lagaskyldur. Lagagrundvöllur vinnslunnar er framkvæmd samnings, lögmætir hagsmunir Rún og lagaskyldur.

10.3 Persónuupplýsingar eru varðveittar á meðan viðskiptasamband stendur og í allt að 7 ár eftir lok þess vegna lagaskyldu um varðveislu bókhaldsgagna. Viðskiptavinir geta haft samband við bokhald@run.is varðandi réttindi sín samkvæmt persónuverndarlögum, þ.m.t. rétt til aðgangs, leiðréttingar og eyðingar.

11. Trúnaður

11.1 Aðilar skuldbinda sig til að gæta trúnaðar um allar upplýsingar sem þeir fá vitneskju um í tengslum við viðskiptasambandið og varða viðskipti, fjármál eða rekstur gagnaðila, og ekki teljast almennt aðgengilegar.

11.2 Trúnaðarskylda þessi gildir á samningstímabili og í 3 ár eftir lok þess. Trúnaðarskylda um viðskiptaleyndarmál, þ.m.t. verðlista og sérstök viðskiptakjör, gildir þó án tímatakmarka.

12. Upplýsingaskylda viðskiptavinar

12.1 Viðskiptavini ber að tilkynna Rún tafarlaust um breytingar á eftirfarandi atriðum:

  • nafni, kennitölu eða heimilisfangi,
  • netfangi reikninga eða tengiliða,
  • verulegum breytingum á eignarhaldi eða stjórn félagsins,
  • aðstæðum sem geta haft veruleg áhrif á getu til að standa við skuldbindingar.

12.2 Tilkynningar Rún teljast réttilega afhentar séu þær sendar á síðast skráð netfang viðskiptavinar.

13. Lögsaga og ágreiningsmál

13.1 Um skilmála þessa og viðskipti milli Rún og viðskiptavina gilda íslensk lög.

13.2 Komi upp ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samkomulagi skal honum vísað til Héraðsdóms Reykjavíkur.

14. Lokaákvæði

14.1 Reynist eitthvert ákvæði skilmála þessara ógilt eða óframkvæmanlegt skal það ekki hafa áhrif á gildi annarra ákvæða.

14.2 Viðskiptavini er óheimilt að framselja réttindi eða skyldur samkvæmt skilmálum þessum til þriðja aðila án skriflegs samþykkis Rún.

14.3 Skilmálar þessir koma í stað allra fyrri skilmála milli Rún og viðskiptavinar og taka gildi við útgáfu þeirra.


Heildverslunin Rún ehf. • Köllunarklettsvegur 2, 104 Reykjavík • www.run.is • 561 9200 • bokhald@run.is