Skip to Content

Um okkur

Heildverslunin Rún ehf. var stofnuð árið 1984 og hefur í rúma fjóra áratugi verið eitt af traustustu heildsölufyrirtækjum landsins á sviði textíls og fatnaðar fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Fyrirtækið byggir á sterkum grunni íslenskrar verslunarsögu, rætur þess ná aftur til ársins 1932 þegar Edda Heildverslun, sem síðar sameinaðist Rún, hóf starfsemi sína.

Frá upphafi hefur Rún verið fjölskyldurekið fyrirtæki þar sem gildi eins og heiðarleiki, áreiðanleiki og virðing fyrir viðskiptasamböndum eru í fyrirrúmi. Markmið okkar hefur ávallt verið að bjóða upp á vandaðar vörur og tryggja að þjónustan sé persónuleg, fagleg og traust.

Sjá verslun

Uppábúið hótelrúm með Dibella hótellíni
Hótel og þjónusta

Rún þjónustar í dag fjölbreyttan hóp viðskiptavina, allt frá verslunum og fyrirtækjum yfir í hótel, veitingastaði og heilbrigðisstofnanir. Við flytjum inn og dreifum vönduðum vörum fyrir atvinnulífið: hótel- og heilbrigðistextíl, rúmföt, handklæði, starfsmanna- og einkennisfatnað, öryggisfatnað og annan fagtextíl.

Í gegnum árin höfum við byggt upp náið samstarf við erlenda framleiðendur sem deila okkar áherslu á gæði, ábyrgð og faglega vinnu. Heildverslunin Rún hefur þróast í takt við tímann en haldið í sínar rætur, fjölskyldufyrirtæki sem stendur fyrir traustum gildum, fagmennsku og góðum tengslum.

Við trúum því að langvarandi árangur byggi á heiðarleika í viðskiptum, virðingu í samstarfi og stöðugri leit að betri lausnum fyrir viðskiptavini okkar.

Skrá mig hér

Sagan okkar

Rætur Rúnar liggja í einni af skemmtilegri verslunarsögum Íslands.

Fyrsta bifreið Eddu Heildverslunar 1938

Fyrsta bifreið Eddunnar, Chevrolet árgerð 1929 með íslenskri yfirbyggingu, fyrir utan Alþingishúsið 1938. Undir stýri Ólafur Magnússon frá Mosfelli.

1932
Edda Heildverslun stofnuð af Thorsurunum, eigendum Kveldúlfs hf., stærsta sjávarútvegsfyrirtækis landsins.
Kreppan
Gjaldeyrishöft ríktu um alla Evrópu og erfitt var að fá greitt fyrir útflutning í erlendri mynt. Sagan segir að Thorsararnir hafi gert vöruskiptasamninga við Ítali: fiskur út, ítölsk vefnaðarvara heim. Edda varð til að koma henni til íslenskra viðskiptavina.
1938
Fyrsta bifreið Eddunnar, Chevrolet árgerð 1929 með íslenskri yfirbyggingu, mynduð fyrir utan Alþingishúsið. Undir stýri sat Ólafur Magnússon frá Mosfelli, starfsmaður Eddu um árabil.
2005
Rún kaupir rekstur Eddu Heildverslunar og söguþráðurinn frá 1932 heldur áfram undir merkjum Rúnar.

Rætur síðan 1932

Heildverslunin Rún var stofnuð 1984 og ber áfram verslunarsögu sem hefur þjónað íslensku atvinnulífi í nær heila öld

Starfsfólk

Arnór Trausti Kristínarson

Arnór Trausti Kristínarson

Stafrænn sérfræðingur / Digital Solutions Expert

arnor@run.is
s. 561-9200

Ása Broddadóttir

Ása Broddadóttir

Sölufulltrúi / Sales Representative

asa@run.is
s. 561-9200

Eyrún María Gísladóttir

Eyrún María Gísladóttir

Framkvæmdastjóri / CEO

eyrun@run.is
s. 561-9200

Helga Bjarnadóttir

Helga Bjarnadóttir

Aðstoðarmaður framkvæmdastjóra / CEO assistant

helga@run.is
s. 561-9200

Hilmir Guðlaugsson

Hilmir Guðlaugsson

Kerfisstjóri / IT Manager

hilmir@run.is
s. 561-9200

Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir

Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir

Innkaup / Purchase department

kolbrun@run.is
s. 561-9200

María Ingunn Þorsteinsdóttir

María Ingunn Þorsteinsdóttir

Sölufulltrúi fyrirtækjasviðs / Corporate Sales Representative

maria@run.is
s. 561-9200

Óttar Ingólfsson

Óttar Ingólfsson

Tæknistjóri / CTO

ottar@run.is
s. 561-9200

Petrína Erla Reynisdóttir

Petrína Erla Reynisdóttir

Bókari / Accountant

petrina@run.is
s. 561-9200

Reynir Ingi Finnsson

Reynir Ingi Finnsson

Innkaup og vöruþróun / Purchasing and Product Development

reynir@run.is
s. 561-9200

Sunna Ríkey Ríkharðsdóttir

Sunna Ríkey Ríkharðsdóttir

Þjónustufulltrúi / Customer Service

sunna.r@run.is
s. 561-9200

Sveinn Heiðar Jóhannesson

Sveinn Heiðar Jóhannesson

Sölustjóri / Sales Manager

svenni@run.is
s. 561-9200

Þórhildur Vilhjálmsdóttir

Þórhildur Vilhjálmsdóttir

Söluráðgjafi fyrirtækjasviðs / Corporate Sales

thorhildur@run.is
s. 561-9200