6202 COVERALL PADDED EN ISO 20471 CLASS 3 (Yellow/Navy)
This content will be shared across all product pages.
| Lína: Herrar |
| Litur: Blátt |
| Vörumerki: ProJob |
Lýsing
Vind- og vatnsheldur samfestingur með límdum saumum. Tvíátta rennilás að framan, hulinn með lista og Velcro-lokun. Brjóstvasar með Velcro-lokun báðum megin, festing fyrir skilríki hægra megin. Rúmgóðir hliðarvasar. Innri vasar báðum megin, sá vinstri með rennilás og sá hægri með Velcro. Teygjumitti með beltislykkjum. Skálmavasar á lærum með loki og Velcro-lokun. Á hægri skálm tommustokksvasi og verkfæravasi með hnífahnappi. Afturvasar með aukavídd, með loki og Velcro-lokun. Fyrir aukið hreyfifrelsi er samfestingurinn með kassafellingu í baki. Innra stillanlegt mitti með snúru, einnig stillanleg stroff og skálmafaldar með Velcro. Tvíátta rennilásar eftir báðum skálmum alla leið upp í mitti sem auðvelda að klæða sig í og úr, einnig innri snjóhlíf við skálmafalda. Innri vasar fyrir hnjáhlífar, stillanlegir í tveimur hæðum.
- Tommustokksvasi
- Vasar fyrir hnjáhlífar
- Endurskin
- Límdir saumar
- Vatnshelt
- Vindhelt
Efni
100% pólýester – 205 g/m²
Snið: Venjulegt
Lína: Herrar
Vottanir
EN 343, EN ISO 20471 Class 3